home biographie termine repertoire fotos hörbeispiele presse kontakt

Hanna Dóra Sturludóttir

Hanna Dóra Sturludóttir stundaði söngnám hjá Kristni Sigmundssyni og Snæbjörgu Snæbjarnar við Söngskólann í Reykjavík áður en hún hélt til framhaldsnáms við Listaháskólann í Berlín, þar sem hún útskrifaðist með láði vorið 1998. Árið 1995 bar hún sigur út býtum í ljóðasöng­ keppni „Paula Lindberg­Salomon“ í Berlín og hljóðritaði í framhaldi af því tvo geisladiska með ljóðasöngvum frá 20. öld.

Hanna Dóra hefur komið fram sem gestasöngvari víðsvegar í Þýskalandi, meðal annars í Komische Oper í Berlin og Ríkisóperun­ um í Hamborg og Berlín. Á árunum 1998­2001 var hún fastráðin við óperuhúsið í Neustrelitz þar sem hún söng mörg helstu sópranhlutverk óperubókmenntanna. Samhliða óperusöngnum hefur Hanna Dóra komið fram á tónleikum um allt Þýskaland og víða í Evrópu og tónleikahald hefur meðal annars borið hana til Qatar og Egyptalands.

Á Íslandi hefur hún sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands við mörg tækifæri, haldið fjölda ljóðatónleika, sungið í uppsetnin­ gum Íslensku óperunnar („Töfraflautan“ 2001, „Tökin hert“ 2005 og titilhlutverk „Ariadne í Naxos“ 2007) og sungið Vínartónleika með Salónhljómsveit Sigurðar Ingva Snorrasonar. Hanna Dóra hefur tvisvar verið sérstakur gestur á Artarena tónleikahátíðinni í Sviss (2006 og 2010), tekið þátt í fjölmörgum uppfærslum óperusmiðjunnar „Novoflot“ í Berlín, sem sérhæfir sig í frumflutningi á nýrri óperutónlist og flutt með þeim verk m.a. í Varsjá og Lúxemburg.

Haustið 2010 söng Hönna Dóra „Miss Donnithorne´s Maggot“ eftir Peter Maxwell­Davies í Ríkisóperunni í Berlín og fékk feikilega góða umfjöllun gagnrýnenda. „Die Sieben Todsünden“ söng hún í Gelsenkirchen vorið 2011 og í haust syngur hún hlutverk Clöru Schumann í nýrri óperu um Robert Schumann í Bonn.
Sumarið 2012 verður Hanna Dóra Sturludóttir gestasöngvari á vegum Bayrische Staatsoper á Óperuhátiðinni í München.

Hanna Dóra Sturludóttir

Tölvupóstur: hannadora@gmx.de

 

Hanna Dóra